20 verzlunarfólki til kaffidrykkju. Það var mjög vel sótt og tókst vel, þar sem strax um 120 manus gjörð- ust félagsmenn. Var rætt meðal annara mála um sumarbústað fyrir verzlunarfólk, stofnun sérstakr- ar kvennadeildar o. fl. Á þessu tímabili gerðist margt markvert, sem til viðreisnar borfði fyrir félagið. Þá gekkst félagið fyrir eftirliti með sölubúðum í Reykjavík, stofnun verzlunarmannafélaga út um land, baldinn nýárs- fagnaður i samráði við félagið Sumargjöf fyrir fá- tækar fjölskyldur og börn þeirra o. fl. o. fl. Seytjánda starfsár var kosinn formaður Gísli Sigurbjörnsson og voru þá félagsmenn um 350. Á starfsárinu var unnið mjög vel að ýmsum mál- um félagsins, meðal annara mála var rætt um launakjör verzlunarmanna, og eftir að nefnd hafði ;skilað málinu til félagsstjórnar, voru sendar til 800 verzlunarmanna í Reykjavík tillögur nefndarinn- ar til athugunar. Athugað um sumarskálabyggingu, tillögur gerðar um prentað blað fyrir félagið, end- urbætur á ráðningastofunni og sett á stofn sérstök skrifstofa fyrir félagið í Lækjargötu 2. Tillögur gerðar um fyrirkomulag Verzlunarskóla Islands og einn maður kosinn til þess að eiga sæti i skólaráði hans (samanber um skólamálin sem birtist á öðr- um stað hér i Árbókinni). Það var tekið fram hér að framan, að á kynn- ingarkvöldinu var rætt um stofnun sérstakrar kvennadeildar fyrir félagið, sem komst í fram- kvæmd litlu seinna. Ennfremur var á árinu stofnuð sérstök sendi-