27 því húsakynni Verzlunarskólans til fundarhalda, endurgjaldslaust. Fyrir þenna góða skilning á þessu málefni verzlunarstéttarinnar á hann margfaldar þakkir skildar frá öllum þeim, sem í þessu félagi starfa. Stjórn félagsins skipuðu í byrjun þessir: H. A. Tulinius, formaður, Teitur Kr. Þórðarson, ritari, Leifur Böðvarsson, gjaldkeri, Engilbert Einarsson, og Árni Ólason. Mér hefir verið kært að rifja upp þessar endur- minningar frá fyrstu fundum félagsins, þótt eg hafi hér orðið, rúmsins vegna, að sleppa mörgu, sem eg einnig hefði kosið að minnast á. Mér er eigi síður kært að sjá, hversu vel félagið hefir dafnað á þeim árum, sem síðan eru liðin, og eg vil enda þessar linur með þeirri einlægu ósk, að félagið megi í framtiðinni starfa í sama anda og það var stofnað og fullkomnast eftir því, sem tím- arnir krefjast og kröfurnar vaxa. Hallgr. A. Tulinius.