Samtök verzlunarmanna. Merkúr er eina stéttarfólag verzlunarmanna hér í bæ. Það væri kaldhæðni að segja, að verzlunar- menn ahnennt hefðu haft áhuga fyrir félagsmálum stétlar sinnar. Frá því Merkúr fyrst var stofnaður ' hefir aðeins lítill hluti verzlunarmanna verið félag- ar þess, og venjulega lítið brot félagsmanna tekið beinan þátt í starfsemi félagsins. Eigi að siður er árangurinn vonum fremri, þegar tillit er er tekið til þessa. Deildaskipting. Innan félagsins starfar sérstök kvennadeild og sendisveinadeild. Þessar deiidir ættu að vera vísir að stofnun fleiri deilda innan vébanda Merkúrs. Sérdeildir ættu að vera t. d. fyr- ir bókhaldara, sölumenn, gjaldkera, innanbúðar- menn (sem helzt þyrfti að skipta i 2 deildir) o. s. frv. En þetta er ókleift meðan ekki eru nema 10 20 menn úr hverjum þessara flokka starfandi í fé- laginu. Eigi verður sagt að verkefni vanti fyrir félagið að vinna úr. Væri t. d. vanþörf á að koma á al- mennum tryggingum meðal stéttarinnar? Þyrfti ekki að koma á betra samræmi í launakjörum