Merkúr. Mörg undanfarin ár hefir verið hljótt um Verzl- unarmannafélagið Merkúr og starfsemi þess. Um allt of mörg ár hafa allflestir verzlunarmenn látið sig félagið engu skipta og verið áhugalausir um mál þess. En ávallt hafa þó verið til menn, sem hafa verið reiðuhúnir til þess að starfa, og það er þessum mönnum að þakka, að Merkúr er ekki fyrir löngu liættur öllu starfi. Þeir hafa haldið merki félagsins uppi, og félagið þakkar þeim það. Sá maður, sem hefir lagt mest af dugnaði og starfi fram, til þess að halda félaginu uppi, er tví- mælalaust Valgarður Stefánsson. Hann hefir um fjölda mörg ár verið í stjórn félagsins og oftsinnis formaður þess. Hann hefir ávallt verið hoðinn og húinn til þess að vinna að málum Merkúrs, livar og hvenær sem er, og á hann mikinn og drjúgan þátt í, að tekizt hefir að koma félaginu nokkuð á vcg. Félagið starfar nú, sem kunnugt er, í þremur deildum, karla, kvenna og sendisveinadeild. Er þessi skipting i deildir innan félagsins nýkomin á, en samt má segja, af þeirri rcynslu sem fengin