37 er, að skiptingin hafi orðið til þess að auka starf- semi félagsins að ýmsu leyti. Það er að mörgu leyti erfitt að greina í sundur starfsemi deilda félagsins, þar sem stjórnin hef- ir, á þessu eina ári, sem liðið er, unnið ýmislegt, sem ekki er frekar fyrir eina deildina heldur en hinar. Karlmannadeildin hefir komið á og haldið uppi mörgum námskeiðum, ráðningarskrifstofu o. fl., sem er vikið að á öðrum stað hér í Árbókinni, Þó skal minnzt á söngflokk deildarinnar, sem nú er vel æfður og skipaður mörgum ágætum söng- mönnum. Hefir flokkurinn látið til sín heyra nokkr- um sinnum og ávallt við ágætan orðstír. Það eru mörg mal, sem fyrir félaginu liggja, mál, sem hljóta að verða innt af hendi og þvi fyr þvi betra. Skulu hér nefnd nokkur. Félagið þarf að geta haft fundi sína og bæki- stöðu á góðum og hentugum stað, þar sem félags- menn geta bitzt utan funda og rætt sín mál. Merkúr þarf að eignast sitt eigið heimili sitt eigið hús. Er skilningur manna fyrir þessu vel- ferðarmáli félagsins að aukast, og er það von mín, að innan nokkurra ára verði unnt að reisa hús fyrir félagið. En á meðan félagið getur ekki reist sér bús, þá mun vera full ástæða til að út- vega héntugt búsnæði fyrir það. Hefir stjórn- in þegar bafizt banda um það mál, og verður von- andi ekki langt að bíða að beimili Merkúrs verði opnað l'yrir i'élagsmenn. Alvarlegasta og mesta vandamál Merkúrs er, nú sem oftar, aðgerðarleysi og atbafnaleysi megin-