38 þorra félagsmanna, og annara verzlunarnianna. ¦ Það er sorglegt en satt, - að ennþá hefir eklci tekizt að vekja menn til starfa til þess að vinna að þeirra eigin hagsmunamálum. Ennþá eru flestir verzlunarmenn í Rvík svo lítt hugsandi, að þeir skilja ekki að samtakalausir mega þeir ekki vera, sjálfs sín vegna. Getur þeim aldrei orðið það ljóst, hversu litlu þeir fá áorkað um sín hagsmunamál, ef þeir eru samtakalausir og sundraðir. Ef þér, sem þetta lesið, vilduð stinga hendinni 1 eigin barm og athuga hvað þér hafið gert fyrir málefni stéttarsystkina yðar, mynduð þér þá geta sagt: Eg hefi gert skyldu mína." Ennþá munu þeir verzlunarmenn því miður ekki vera margir, sem geta sagt það; þeir hafa af hugsunarleysi van- xækt sín skyldustörf. - En svo mikið traust ber eg til verzlunarmanna þessa bæjar, að þeir sýni það nú í orði og í verki, ekki einn, heldur allir sem einn, að þeir vilja sín mál fram. Mál, sem hingað til hafa verið vanrækt af þeim all- flestum, en sem eru til hagsbóta þeim öllum. Markmið Merkúrs er að fá alla verzlunarmenn Rvíkur, bæði karla, konur og sendisveina undir merki sitt. Félagið heldur fram þeirra málum i hvívettna, og það er sjálfsögð skylda þeirra að hjálpa til að koma þeim málum öllum fram. Merkúr er yðar félag, eruð þér félagi Merkúrs? Rvík i desember 1931. Gísli Sigurbjörnsson.