42 verzlunarstúlkur þær, er ekki tala á fundum og jafnvel þó þær mæti ekki á fundum, sem þó ætti að vera það sjálfsagða, skrifi greinar i blað þetta. Takmark deildarinnar er fyrst og fremst að vinna að þvi að kvenfólk fái greitt sama kaup fyr- ir sömu vinnu og karlmenn, og ennfremur að bæta kjör verzlunarstúlkna á allan hátt svo sem unnt er. Takmarkið er stórt og langt frá okkur, en við getum nálgast það, ef við viljum aðeins vinna að þvi í sameiningu og með réttsýni, þvi að ef hverri stúlku finnst það sín skylda, að vera i því félagi, sem hún tilheyrir, þá mun verkið reynast létt, en ef hún aftur á móti hugsar, að ekkert muni um sig og að hún geti ekkert gagn gert, þá skjátlast henni algerlega, það er tími til kominn, að verzl- unarstúlkur felli grímuna og verði sjálfstæðari. Gangið því i eina verzlunarmannafél. (þ. e. sem aðeins er skipað verzlunarþjónum) sem hefir sér- staka deild fyrir ykkur, Verzlunarmannafélag- ið Merkúr. Reykjavík, 11. desember 1931. Elinborg Þórðardóttir.