Sendisveinadeildin. Mörgum þótti það kynlegt, að Merkúr skyldi stofna sérstaka deild fyrir sendisveina, en það gerði félagið i aprílmál. síðastl. Þeir, sem þekkja kjör og aðbúnað sendisveina, eru vissir um, að hér var ekki vanþörf á, að Merkúr léti til sín taka. Sendi- sveinar hafa viða litið kaup og slæma aðstöðu til þess að koma sínum kröfum fram, nema með sam- tökum. En það, sem ekki má gleyma hér, er að sendisveinar eru yngstu verzlunarmennirnir. Það verða þeir, sem eftir nokkur ár munu ráða málum verzlunarmanna hér i Rvík, og það er þess vegna mikilsvert, að þeim sé sem fyrst fylkt undir merki Merkúrs. Grundvöllurinn undir starfsemi félagsins verður að vera traustur, ef vel á að fara, og eg er fullviss um, að á sendisveinadeild Merkúrs á félagið eftir að reisa mikið og gagnlegt starf i þágu verzlunar- manna þessa lands. Síðan sendisveinadeildin tók til starfa, eru ekki liðnir nema 8 mánuðir, en samt hefir hún nú yfir 250 meðlimi. Sendisveinar hafa sýnt það á þess-