44 um tíma, að þeir eru duglegir og hafa fullau áhuga og skilning á sínum málum. 1 sumar héldu þeir uppi ferðum um nágrenni Rvikur, og voru þær ferðir ávallt vel sóttar. Frægustu ferðina fóru þeir austur að Gullfossi* og tóku yfir 60 drengir þátt í þeirri för. Ýms- ar skemmtanir hefir deildin haldið. Vetrarhátíð héldu þeir í nóvemher síðastl., og var þar marg- menni mikið saman komið og skemmtu allir sér hið hezta. En þó að sendisveinar hafi oft skemmt sér, þá má enginn halda, að þeir hafi gleymt tilgangin- um með félagi sínu, sem er að vinna að hætt- um hagsmunum og kjörum sínum. Sendisveinadeildin fékk því tíl leiðar komið við félag matvörukaupm. og heildsala, að þeir munu framvegis gefa sendisveinum sinum frá 710 daga sumarfrí. Var það í fyrsta skipti i sumar, að margir drengir fengu sumarfrí, enda þótt þeir hefðu um mörg ár verið sendisveinar. Kvöldskóla hefir sendisveinadeildin sett á stofn fyrir meðlimi sína. Er aðsókn ágæt og stunda þar yfir 60 drengir nám, sem reyndar er ekki nema 6 tímar vikulega. Er ánægjulegt að vita, að sendisveinar allflestir hafa áhuga á að afla sér frekari þekkingar. Þeir virðast skilja, að mennt- un er afl, sem hverjum þeirra er nauðsynlegl lil þess að komast áfram i lífinu. I vetur hefir deildin fengið samninga við stærri fataverzlanir bæjarins um sérstakan afslátt, og í suraum tilfellum gjaldfrest á þeim vörum, sem