Karlakór verzlunarmanna. Það var á aðalfundi Merkúrs 25. jan. 1927, að því var fyrst hreyft, hvort tiltækilegt væri að stofna karlakór innan vébanda félagsins. Hugmyndin fékk strax góðar viðtökur, og á næsta fundi var ákveðið að hefjast handa i þessu máli og kosin þriggja manna nefnd til þess að hrinda því í fram- kvæmd. Þann 16. f ebrúar sama ár mættu svo nokkr- ir ungir og söngvinnir Merkúristar í hljóðfæra- verzlun Helga Hallgrímssonar, sem þá var í Lækj- argötu, og voru menn þar prófaðir og þeim síðan skipað í viðeigandi raddir. Var nú byrjað að æfa af kappi, og hinn fyrsti sýnilegi árangur kom í ljós 10. marz s. á., þvi að þá söng flokkurinn á skemmti- fundi félagsins og var mjög vel tekið, þótt lítið væri upp á að bjóða, en taka verður tillit til þess, að verzlunarmenn, og þá Merkúristar einnig, eru menn kurteisir. Síðan hefir flokkurinn sungið á fjöldamörgum skemmtifundum innan félagsins og sparað félaginu þar með aðkeypta skemmtikrafta. Á 15 ára afmæli Merkúrs 28* des. 1928 lét flokk- urinn tóna sína líða um hinn blómum skrýdda sal á Hótel ísland, með mikilli prýði, að sögn. I lilefni