50 við ágætan orðstír. Síðan hefir flokkurinn ekki efnt til opinberra söngskemmtana, en sungið af og til á skemmtifundum Merkúrs, og nú síðast á fullveld- isfagnaði félagsins 1. des. þ. á. Á síðastliðnu ári tók við stjórn flokksins Bjarni Jónsson, verzlunarmaður, og hefir þegar sýnt mik- inn áhuga fyrir starfinu, og trú á framlíð hans. Sumarið 1930 fór flokkurinn í skemmtiferð ausl- ur að Laugarvatni, og voru allir söngmennirnir i sömu bifreið, svo að geta má nærri, að þar hefir lagið verið fekið. Voru allir þátltakendur mjög ánægðir með ferðalagið, og hétu því, að fleiri slík skyldu á eftir fara. Kg hefi nú i fám dráttum rekið starfsferil Karla- kórs Merkúrs í þau tæp 5 ár, sem liann hefir starf- að, og vona að þessir drættir hafi sýnt það, að hann hefir ekki brugðizt köllun sinni, en hún var og er sú, að skemmta félagsmönnum og spara fé- laginu aðkeypt skemmtiatriði. Þótt margir erfið- leikar séu á vegi slíks flokks, þar sem ekki eru nema 34 menn í hverri rödd, þá hefi eg samt þá trú, að flokkurinn eigi eftir að verða Merkúr til ánægju og gagns, jafnframt því, sem hann sjálf- ur nær meiri leikni í því að flytja þeim, sem ekki gera allt of miklar kröfur til annara, tóna hinnar eilífu listar. Konráð Glslason.