53 verzlunarfólk, og bauðst til þess að taka að sér starfrækslu stofunnar gegn kr. 25,00 mánaðarlegri greiðslu frá félaginu, sem þó yrði rekin með fullu eftirliti frá beggja félaganna hálfu. Verzlunar- mannafélag Re^'kjavíkur hafnaði þessari málaleit- un stjórnar Verzlunarmannafél. Merkúr. Þrátt fyrir það ákvað fclagsstjórnin að setja á stofn af eigin ramleik áminnzta skrifstofu, sem nú hefir starfað í 5 mánuði og aðsetur hefir í Lækjar- götu 2. Auk þess sem skrifstofan annast um útvegun á atvinnu fyrir verzlunarfólk (þ. e. a. s. meðlimi fé- lagsins) og lætur í té allskonar upplýsingar sem við kemur starfsemi félagsins og leiðbeinir um ýmiskonar mál þeim og þeirra starfi viðkomandi, liefir stjórn félagsins haldið alla stjórnarfundi þar, einnig eru oft haldnir þar nefndarfundir, þar ligg- ur frammi spjaldskrá yfir alla félagsmenn, fundar- bækur félagsins o. fl. En hver er svo árangurinn af þessari starfsemi félagsins okkar? Og er þessu máli nokkuð betur fyrir komið en áður var? Því svara eg hiklaust játandi, og skal til frekari stuðnings þessari full- yrðingu færa fram sannanir. , Þrátt fyrir fyrir það, þó að enn þá gangi erfið- lega að fá alla málsaðilja, atvinnulcitendur og at- vinnuveitendur til þess að notfæra sér starf stof- unnar og starfsvið, þá cru þó augu þeirra að opn- ast smátt og smátt fyrir gagninu, sem af þessu starfi hlýzt, og þvi til sönnunar vil eg nefna tölur sem sýna að 38 manns hafa fengið atvinnu fyrir aðstoð