54 stofunnar, þar af 30 sendisveinar, 5 slúlkur og 3 karlmenn. Það skal tekið fram, að allt þetta fólk var áður eða er nú meðlimir félagsins. Ennfremur hafa fjölmargir leitað ýmiskonar upplýsinga viðkomandi atvinnu sinni, ráðningar- tíma, vinnutima, skólum í úllöndum o. fl. Skrifstofan hefir jafnframt látið í té lögfræðis- hjálp í deilumálum sem upp hafa komið milli at- vinnuveitanda og atvinnuþiggjandans, og hafa nú þegar nokkur slík mál verið útkljáð fyrir til- stilli stofunnar. Að síðustu vil cg leyfa mér fyrir hönd félagsins að hvetja alla félagsmenn til þess að notfæra sér aðstoð skrifstofunnar í öllum vandamálum sem við koma starfi þeirra, ef svo giflusamlega vildi verða, að þeir fengju þar góða lausn þeirra. Skrifstofan er opin alla virka daga frá í)12 og 26 síðd. og tekur þakksamlega á móti öllum fé- lagsmönnum, eldri sem yngri, er leita vilja upp- lýsinga, leggja inn umsóknarheiðni sína eða ann- að sem til heyrir störfum þeirra. Félagsmenn og konur og sendisveinar: Minnizt félagsins ykkar, eina stéttarfélags verzlunarmanna í Reykjavík, og fylkið ykkur undir merki þess, þá er málum okkar sigurinn vis. Valgarður Slefánsson.