56 þar sem félagsmenn gætu komið um helgar og á öðrum frídögum og lyft sér upp úr bæjarrykinu. Var þetta rætt nokkuð á fundum félagsins, og sið- an var nefnd manna falið að sjá um frekari fram- kvæmdir. Vann nefndin ósleitilega að þessu nokk- urn tíma. Ferðaðist hún talsvert hér um nágrenn- ið, til að leita að heppilegum stað, sem ekki væri of langt frá hænum, svo að kostnaður þyrfti ekki að vera mikill fyrir félagsmenn að komast þangað. Einnig varð að athuga, að kostnaður við að koma efni til slíkrar hyggingar yrði ekki of hár. Enn- fremur leitaði hún fyrir sér með teikningu af skála sem yrði heppilegur, þannig, að bæði væri hægt að leyfa félagsmönnum að vera þar í sumarfríum ef þeir óskuðu þess, og svo aftur liitt, að hann væri einnig bentugur til að taka á móti fleirum um helgar. Eftir að nefndin haí'ði athugað hinar ýmsu hlið- ar þessa máls, sá hún sér ekki fært að leggja til, að byrjað yrði á framkvæmd það sumarið, þar sem nægjanlegt fé var ekki fyrir liendi, en mun taka málið fyrir aftur að nýju fyrir næstkomandi sum- ar, og vonast þá til, með tilstyrk góðra f élagsmanna, að gcta séð þessu velferðarmáli verzlunarmanna hrundið í framkvæmd. Guðbjarni Guðmnndsaon.