61 danska tryggjendur fá helminginn, og verðið um leið þessum 37 þús. kr. hærra. Þetta skeður á sama tíma, sem Danir hafa vátryggingarumboð í hverju skoti á Islandi, en íslendingar snerta ekki danska mark- aði. Svona horfir nú þessu við. Eg hið alla kaup- sýslumenn að gá í eigin barm. Hvernig er svo afstaða núverandi sljórnarvalda. Fyrst, afstaða þeirra lil þjóðlegu málanna. Eg las fyrir stuttu í stjórnarhlaðinu grein frá einum ráð- herranum, þar scm hann hvetur þjóðina til að búa að sínu. Góð orð og þjóðlega töluð, Þvi miður eru miklir brestir á, að rikisstjórn- in haldi þetta boðorð sjálf. Hefi eg ákveðin dæmi fyrir mér um það, þótl eg tilfæri þau ekki hér. Hér gildir hið sama um stjórnarvöldin og verzl- unarstéttina, og hvað annað: Þau eru ekki sterk, nema hugur og hönd fylgist að. Merkúr krefst þess af sérhverjum valdhöfum, að þeir finni skyldu hinna árvökru útvarða hvila á herðuni sér, þegar um verndun og viðhald íslcnzkra viðskipta ræðir, og að þeir láti til sinna kasta koma, þegar út af bregður. Það hefir því miður komið fyrir, að abyrgir vald- hafar hafa atyrt og nílt verzlunarstéttina i heild sinni, opinberlega. Slíkt á hvergi að koma fyrir, allra sízt úr ráðherrastóli. Verzlunarstéttin er viðurkennd stétt, og á jafna vernd skilið og virðing og hver einasta önnur stétt innan löglegra vébanda þjóðfélagsins. Að endingu ætla eg að víkja fáum yfirlitsorðum að öðrum meginþætti i stefnu Merkúrs: Samtök-