Verzlunarskóli Islands. Þar eð Verzlunarmannafélagið Merkúr hefir fengið hlutdeild i stjórn Verzlunarskóla Islands, þá er ástæða til þess að geta skólans í þessu fyrsla ársriti félagsins. Það hlýlur að vera mikið ánægjuefni öllum meðlimiini Merkúrs, að félaginu skuli hafa hlotnazt hlutdeild í stjórn þessa skóla, sem er og á að vera aðal menntalind þeirrar stéltar, sem Merkúr samanslendur af, enda dylst mér það eigi, að þetta ar mun verða talið merkis ár i sögu félagsins, vegna þessa. Prá þvi að eg var i þessum skóla, en síðan eru um 13 ár, heí'i eg æfinlega hugsað hlýlega til hans og þeirra kennara, sem þá kenndu við hann, og slíkt hið sama veit eg að allir gera, sem einhverntíma hafa notið fræðslu þar. Mér er það fyllilega ljóst, að eg og þeir aðrir, sem eru útskrifaðir af Verzlunar- skólanum, eru ekki sprenglærðir, siður en svo, vér getum ábyggilega tekið undir með spekingnum sem sagði, að þvi meira sem maður lærir þeim mun betur finnur maður til þess, hvað maður er fákunn- andi, því svo má lengi læra sem lifir". En þó er mér það ljóst að margt af því, sem oss hefir verið kennt