68 lendis, þeim sem lengst eru komnir, fyllilega á sporði. Stofnendur verzlunarskóla Islands eru Verzlunar- ínannafélag Reykjavíkur og Kaupmannafélagið og tók skólinn til starfa haustið 1905 og sýndi það sig þá strax, að mikil þörf var fyrir þenna skóla, því að fyrsta árið urðu nemendur 54 og annað árið 71. Skólastjórar hafa verið hr. Ólafur G. Eyjólfsson, fyrstu 10 árin, og Jón Sivertsen i 16 ár, eða til loka rsíðasta skólaárs. Nú fyrir þetta skólaár hefir verið ráðinn skólastjóri við skólann hr.magisterVilhjálm- ur Þ. Gíslason og er mér persónulega kunnugt um, að hann hefir mikinn áhuga fyrir að glæða félags- legt lif í skólanum, ennfremur að fullkomna skól- ann með því að bæta ýmsum nýjum námsgreinum við, sem sé spönsku, verzlunarsögu og hraðrtunr <ennfremur verður sérstök tilsögn í bankafiæðum, íryggingarfræðum, auglýsinga- og sölu-fræðum og i útgerðar- og búnaðar-fræðum. Þessar námsgreinar eru allar mjög nauðsynlegar og sjálfsagðar i íslensk- um verzlunarskóla. Verzlunarskólinn hefir átt við mjög þröng kjör að búa og er það aðallega vegna fjárskorts. Mest hefir þó borið á húsnæðisvandræðunum, því frá upp- hafi hefir skólinn haft svo ömurleg húsakynni, að slíks eru vist fá dæmi með skóla; kennslustofurnar kaldar og þröngar, innanstokksmunir slæmir og svo þegar út var komið i frímínútum, þá hafa nemend- urnir orðið að húka á götunni, þvi enginn var leik- völlur tilheyrandi skólahúsinu. Nú hefir verið bætt lúr þessu á dásamlegan hátt með hinu nýja verzlun-