69 arskólahúsi við Grundarstíg, sem er eitt hið bezta skólahús bæjarins, með rúmgóðum og björtum kennslustofum, sýnishorna- og bókasafns-herbergi auk nauðsynlegs útbúnaðar og þæginda. Allt þetta getum við þakkað islenzku kaupmannastéttinni, sem hefir frá byrjun skólans haldið honum að mestu leyti uppi með fjárgjöfum og annari hjálp, þvi rik- isstyrkur hefir alltaf verið mjög litill, sérstaklega þegar tekið er tillit til hvað aðrir skólar hafa fengið og eins þegar tekinn er til greina nemandafjöldi skólans. Skólaráð Verzhinarskólans er skipað eins og hér segir: Fulltrúi frá Verzlunarráði Islands, hr. framkvstj. Carl Proppé. Fulltrúi frá Verzlunarmannafélagi Reykjavikur* hr. umboðssali Egill Guttormsson. Fulltrúi frá Félagi íslenzkra stórkaupmanna, lu\ stórkaupm. Björn Ólafsson. Fulltrúi frá Félagi íslenskra botnvörpuskipaeig- anda, hr. framkvstj. Ásgeir Þorsteinsson. Fulltrúi frá Félagi matvörukaupmanna í Reykja- vik, hr. kaupm. Valdimar Þórðarson. Fulltrúi frá Verzlunarmannafélaginu Merkúr undirritaður. Verzlunarskólinn er kominn á miklu fastari grund- völl nú, þar sem stjórnina skipa fulltrúar frá svo mörgum og öflugum fclögum og nú verða betri skil- yrði fyrir nemendur sem útskrifast af skólanum að fá atvinnu, þar sem i þessum félögum eru svo að segja allir kaupsýslumenn þessa lands.