Um bankastarfsemi. Bankarnir eru þrír hér á íslandi: Landsbanki ís- lands (stofnsettur 1886), Útvegsbanki Islands h.f. (stofnsettur 1930) og Búnaðarbanki Islands (stofn- settur 1930). Landsbanki íslands. Landsbankinn (á ensku: The National Bank of Iceland) er þjóðbankinn. Upphaflega hafði hann rétt til að gefa út seðla með ríkisáhyrgð fyrir kr. 500.000.oo; var það aukið í kr. 750.000.oo árið 1900. Nú hefir hann einn rétt til seðlaútgáfu hér á landi, og eru seðlarnir nú tryggðir með gulli. Útvegsbank- inn hefir þó enn þá nokkra upphæð, i seðlum sín- um, i umferð, en á að draga þá inn, samkv. lögum. Bankanum er skipt í 3 deildir: Seðladeild, Spari- sjóðsdeild og Veðdeild. Bíkið ábyrgist allar skuld- bindingar bankans, svo og innstæðufé i bankanum. Stofnfé seðladeildar er 3 miljónir króna, er ríkið lagði bankanum, en af því greiðir bankinn rikinu 6% vexti, ef ágóði af deildinni verður a. m. k. helm- ingi meiri en þeirri upphæð nemur; afgangurinn rennur í varasjóð seðladeildarinnar. Gullforði sé