NámskeiB Merkíir. Eitt af því sem Verzlunarmannafélagið Merkúr hefir gert fyrir stéttina er stofnun námskeiðsins, það var stofnað árið 1928 og það getum vér þakkað mest vorum núverandi ötula formanni félagsins, hr. Gisla Sigurbjörnssyni. Námskeiðið sækja nú um 40 nem- endur, og fer kennslan fram annað hvert kvöld í hinu nýja verzlunarskólahúsi, og er í 2 deildum. Kennslugreinar eru bókfærsla, reikningur, verzl- unar- og viðskiptafræði og vélritun. Námskeiðið er góður undirbúningur þeim sem ætla sér að ganga inn í Verzlunarskólann. Vér vonum, allir Merkúrsmenn, að námskeiðið- eigi eftir að blómgast og verða sómi félagsins. Jón Gunnarsson.