79 starf. Þess vegna þyrpast þær í stöður, þar sem ekki er krafizt ákveðinnar undirbúningsmenntunar og svo mikið er aðstreymið af þeim, að varla lítur úl fyrir, að þær, sem betur eru menntaðar, hafi betri möguleika til þess að komast að en hinar, en frænd- semi og vinátta megi sín mest. Það getur líka vel verið satt að náttúrugreind, samvizkvisemi og reynsla í starfinu sé notadrýgri en nokkur skólamennlun og það hefir einmitt þótt ein- kenni konunnar að hún væri karlmanninum fremri í því að laga sig eftir kringumstæðunum og komast inn i verk sem hún væri óvön. Það var reynsla striðs- áranna, stóð seinast í Neistanum" okkar. En þar með er ekki sagt, að þessar konur hafi ekki langað í meiri menntun og meiri möguleika heldur en buð- ust þeim á vinnustaðnum þar sem kraftar þeirra voru notaðir. Það eru réttindi hvers manns að hafa ekki lengri vinnutima en það, að kraftar hans séu ekki þrotnir þann daginn, þegar heim er komið og að hafa svo hátt kaup, að hann geti veitt sér að minnsta kosti helztu nauðsynjar lífsins.Hvertdýr vill eiga sér holu eða hreiður. Lengi hefir það verið sagt aðalhlutverk konunnar að hugsa um heimilið, en hún hefir líka verið svo bundin að það hefir verið eina bjargarvon hennar að eignast mann. Þó vinna hennar á heimil- inu jafngilli fyllilega hans vinnu þá hefir þó verið talið að hann væri fyrirvinna" hennar. En nú er konan að gera sér ljóst, að lieimili er eitt og föru- nautur í lífinu er allt annað. Heimili á hver að geta skapað sér með vinnu sinni, samband karla og