Lög Merkúr. 1. gr. Félagið heitir Verzlunarmannafélagið Merkúr". 2. gr. Tilgangur félagsins er að vinna að nánari við- kynningu og skipulagsbundnum samtökum meðal verzlunarþjóna, og kappkosta að efla, styrkja og mennta verzlunarstétt landsins af fremsta megni. 3. gr. Félagið reynir að ná áformi sínu á þennan hátt: a. Með þvi að vera vakandi fyrir öllu þvi, sem gæti orðið til viðreisnar og framfara verzlunarstétt- inni. b. Með því að vinna á heilbrigðum grundvelli að því að betra skipulag komist á i launakjörum og störfum verzlunarmanna. c. Með því að halda fundi svo oft á félagsárinu, sem atvik leyfa og þörf gerist, um málefni, sem séu fræðandi og heillavænleg fyrir verzlunar- stétt landsins. 6