82 4. gr. Félagsmaður getur hver sá orðið, karl eða kona, sem lokið hefir burtfararprófi frá Verzlunarskóla Islands, eða öðrum eigi ófullkomnari verzlunar- skóla, og verzlunarfólk það, er hefir að minnsta kosti verið 1 ár við verzlun, og ætlar sér að stunda þau störf framvegis, og er fullra 16 ára. Meðlimir yngri en 16 ára hafa ekki atkvæðisrétt um félags- mál. 5. gr. Hætti meðlimur að vera vinnuþiggjandi, eða hætti að fást viið verzlunarstörf, þó eigi Vegna skorts á atvinnu, getur hann eigi talizt meðlimur félagsins lengur. 6. gr. Aldrei má gera neinn meðlim heiðursfélaga, en veita má viðurkenningu fyrir vel unnin störf í þágu félagsins. 7. gr. Hver sá, sem óskar inntöku í félagið, skal hafa meðmæli tveggja félagsmanna, enda sé stjórnin honum hlynnt. Innsækjandi er því aðeins orðinn félagsmaður, að % viðstaddra félagsmanna séu honum meðmæltir, að viðhafðri venjulegri at- kvæðagreiðslu. Þó má viðhafa leynilega atkvæða- greiðslu ef fundurinn æskir þess. Þó hefir enginn atkvæðisrétt fyrr en á næsta fundi eftir að hann hefir verið samþykktur sem félagi.