83 8. gr. Árstillag sé kr. 10.00 fyrir karlmenn og kr. 6.00 fýrir kvenfólk og greiðist fyrir 1. október ár hvert. Af því skulu kr. 2.00 renna í Húsbyggingarsjóð Verzlunarmannafélagsins Merkúr". Nýir meðlim- ir greiði fyrsta ársgjald við inntöku. Þó skulu þeir sem ganga inn eftir 1. maí ekki greiða nema hálft gjald, og skal þeim þá afhent félagsskirteini. Fé- lagsskírleini gildir sem aðgöngumiði að aðalfundí félagsins, það ber að sýna á skemmtunum og sam- korauin félagsins, ef þess er krafizt. Félagsskir- teinið gildir aðeins milli aðalfunda. Meðlimir sem dvelja utan Reykjavíkur ár eða lengur, eru gjald- fríir þann tíma. Af innkomnum árstillögum skal renna 10% til Verzlunarskóla íslands, svo lengi sem félagið hefir fulltrúa í skólaráðinu. Sendi- sveinar greiði kr. 2.00 í árstillag, en af því rennur ekkert í húsbyggingarsjóð. 9. gr. Stjórn félagsins skal skipuð 5 mönnum og 3 til vara. Skal á aðalfundi kjósa 4 þeirra, formann sér- staklega og hina þrjá alla í einu lagi. Auk þess skal formaður framkvæmdarnefndar Kvennadeild- ar félagsins sjálfkjörinn í stjórn þess. Stjórnin skal kosin skriflega og til eins árs í senn og má endurkjósa stjórnendur. Einnig skal á þeim fundi kjósa 2 endurskoðend- ur og 2 til vara, til næsta aðalfundar. Ennfremur skal þá kjósa í allar fastar nefndir, er starfa i fé- laginu. 6*