Utanfararsjóíur Merkúr. 1. gr. Sjóðurinn heitir Utanfararsjóður Verzlunar- mannafélagsins Merkúr. 2. gr. Stofnfé sjóðsins er kr. 500.00 fimm hundruð krónur, gjöf frá hr. stórkaupm. Ólafi G. Eyjólfssyni i Reykjavik, gefin 2. ágúst 1919. 3. gr. Tilgangur sjóðsins er styrkja unga og efnilega verzlunarmenn til að fara utan að fullnuma sig i verzlunarfræði. Styrk úr sjóðnum geta þeir einir fengið sem eru félagar í Verzlunarmannafélaginu Merkúr, og gangi þeir fyrir, að öðru jöfnu, sem útskrifazt hafa úr Verzlunarskóla Islands. 4. gr. Sjóðinn skal ávaxta: a. í sparisjóðsdeild Landsbankans eða öðrum jafn- tryggum sparisjóði eða banka.