89 b. Kaupa ríkisskuldabréf eða önnur arðberandi verðbréf sem álíta má jafngóð. Þegar sjóðurinn er orðinn kr. 20000.00 tutt- ugu þúsund krónur -, má veita helming vaxta hans, en hinn helminginn skal leggja við höfuð- stólinn, og þegar sjóðurinn er orðinn kr. 30000.00 þrjátíu þúsund krónur , má veita % hluta vaxta hans til utanfararstyrks samkv. 3 gr., en einn f jórði hluti leggist við höfuðstólinn. 5. gr. Stjórn sjóðsins skipa 3 menn: Formaður Verzl- unarmannafélagsins Merkúr á hverjum tíma sem er, og tveir menn aðrir er kosnir skulu á aðalfundi félagsins ár hvert. 6. gr. Stjórn sjóðsins úthlutar styrk úr sjóðnum samkv. 3. og 4. gr. 7. gr. Heimilt er Verzlunarmannafélaginu Merkúr að gera breytingar á skipulagskrá þessari á aðalfundi félagsins, og eru þær löglegar ef % fundarmanna samþykkja þær. 8. gr. Ef Verzlunarmannafélaginu Merkúr skyldi verða slitið, skal sjóðurinn falinn Verzlunarráði Islands til eignar og umráða, með þvi skilyrði að það verji honum ungum og efnilegum mönnum til utanfar- arstyrks samkv. 3. gr.