Formaíurinn okkar. Hann heitir Gisli Sigurbjörnsson, ungur maður, rúmlega tvítugur að aldri, lítill vexti, fóthvatur, fríður sýnum, með stórt höfuð. En margur er knár þó hann sé smár, og mun þetta máltæki sann- ast hér. En hvað er fleira að segja um manninn? Hvers vegna er hann formaður félagsins? Hvað hefir hann til þess unnið? Hvað hefir hann gert? Hvað hefir hann lært? Og hvað er heimtað af formanni í stéttarfélagi verzlunarmanna í Reykjavik? Þessum spurningum hlýtur að skjóta upp, ef um Gísla er talað. Þessum spurningum vildi eg svara. Formaður félagsins er hann af því, að hann hefir sýnt það meiri starfsorku, starfsvilja, þrautseigju og lægni að koma fram málum stéttarinnar en nokkur annar einn maður i okkar hóp hefir nokk- urn tíma sýnt. Vakandi og sofandi hugsar Gísli um velferðar- mál okkar og ann þeim málum heitast allra mála, hamingjunni sé lof, þess vegna er hann formað- ur okkar. Það var Gísli sem tók við félaginu, sem þá var í mikilli deyfð, árið 1929. Þá var hann eini mað-