94 urinn, sem bauðst til þess verks, er engan annan fýsti að vinna, en verkið var að endurreisa félag- ið, blása lífi og ábuga í stéttina og félagsskapinn og koma skipulagi á félagsstarfsemina. Verkið var erfitt. En slíkur brautryðjandi, sem Gísli er, sá að efniviðir voru margir til, og bann sá líka og vissi, að verkið var óvinsælt og illa launað, en til þess að bann gæti efnt loforð sín, kom til greina stefnufesta bans og bjartsýni, slálbarður vilji og. framsækni, sem jafnan einkennir sierka menn. Vegna þessa alls hefir bann unnið til stöðu sinnar. Gísli hefir brotizt fram með krafti og ósérplægni og komið fram mörgu mjög mikilsverðu fyrir fé- lagið. Hann hefir endurvakið ráðningastofu og upplýs- ingastöð félagsins; hann var hvatamaður að stofn- un sérstakrar kvennadeildar félagsins, umsjónar- og forvígismaður sendisveinadeildar félagsins; hann hefir frekar en nokkur einn félagsmaður end- urbætt og aukið að miklum mun námsskeið og skólamál félagsins, þar sem bann er nú skólastjóri. Hann hefir jafnframt stofnað sérstakt verzlunar- mannafélag í Hafnarfirði, og auk þess unnið sem formaður í mörgum nefndum innan félagsins o. fl., o. fl. Gísli hefir próf frá Verzlunarskóla Islands og ennfremur hefir bann notið mikillar fræðslu i er- lendum skólum, bæði í Þýzkalandi og víðar. Hann hefir verið um margra ára skeið bókfærzlukenn- ari hér i bæ, og mun vera einn hinn slyngasti í þvi fagi, af öllum þeim, sem kenna það hér.