Úr einu lcmdi í annað MAÐUR nokkur að nafni Wes- ley Berry frá Sault Sainte í Onterio í Bandaríkjunum, varð frægur nýskeð fyrir að drepa bjarndýr með berum höndunum. Kvöld eitt var hann á ferð með bræðrum sínum tveimur og ætl- uðu þeir að sofa i tjaldi yfir nótt- ina. Alt í einu réðist að þeim bjarndýr og flýðu þá bræðurnir tveir í ofboði en Wesley snerist iil varnar og gekk á móti dýrinu. Varaði sú viðureign stutt, því hann náði fangbrögðum á bangsa og með eldsnöggu átaki, tókst að fleygja honum um koll. Við bilt- una hálsbrotnaði bjarndýrið. En nafn Wesleys hefur flogið um allan heim, síðustu vikurnar. sér fram á borðstokkinn á skipinu er það hafði blásið í þriðja sinn, var hún með vindil milli litaðra varanna, eggjandi kæruleysislegt bros og djúpa bláa skugga undir augunum. FÆREYJAR munu sökkva í haf- ið samkvæmt því, sem síðustu rannsóknir skýra frá. Það er sænskur maður J. V. Sandström, forstjóri fyrir veðurathugunar- og sjávarrannsóknastöð Svíþjóðar sem hefur komist að þessari niðurstöðu. Hann hefir um fjölda ár feng- ist við rannsóknir á Qolfstraum- inum og þýðingu hans fyrir Norð- urlónd. Sandström er nú nýkominn úr einum slikum rannsóknarleið- angri. Dvaldi hann þá meðal annars í Færeyjum. í viðtali við »Nya Dagligt Allehanda« í Stokkhólmi, fullyrðir hann að Færeyjar munu óumflýanlega sökkva í hafið, eftir stuttan tíma, landfræðilega séð, eða ca. ÍOO.OGO ár. Norðurhluti eyjanna hafa vetrar- stormar Atlantshafsins herjað um miljónir ára, segir Sandström, og brimin hafa nú holgrafið eyjarn- ar svo að stórir hlutir geta þá og þegar hrunið í hafið. Um helmingur eyjanna er nú þegar svo sundurgrafinn.