a oia 0 oq me n o 'rk ?* Gera menn sér að jafnaði Ijóst að þeir eyða miklum hluta æfi sinnar á götunni, lifa svo að segja hálfu lifi sínu þar. Daglega ske þar atvik er ráða úrslitum í stórum vandamálum, eða valda um- brotum í heimilislífi manna. Þar eru teknar ákvarðanir, sem geta haft afleiðingar um árabil. Segjum nú svo að hr. Jónsson mæti frú Pétursson og taki ekki ofan'né heilsi, aðeins sökum þess að frú Jónsson, kona hans hafði sagt honum, hversu andstyggileg framkoma frú Pétursson hefði verið gagnvart henni í samsætinu hjá frú Sveinsson, kvöldið áður. Hvílíkar óhemjuafleiðingar getur slíkt ekki haft á alt heimílislíf og atvinnulif þeirra Jónssonar og Péturssonar, getur eyðilagt á stutt- um tíma viðskiftasambönd sin á milli o. s. frv., o. s. frv. Eða tökum annað dæmi. Þú mætir ungri, laglegri stúlku á göt- unni um miðnætti, og býðst til að verða henni samferða inn Hverf- isgötuna, því myrkrið og ýmislegt fleira, sem gatan á í fórum sín- um er hættulegt ungum og laglegum stúlkum. Og svo þegar þið komið inn á móts við Vatnsstiginn kemur konan þín í fangið á þér innan úr myrkri götunni. Mig skyldi ekki undra þó það færi hrollur um þig, bara við að lesa þetta. Eða athugið hvilíkar afleiðingár það mundi hafa, ef Jónas stæði á bak við eitthvert húshorn og væri að tala illa um Ásgeir, sem stæði hinumegin við húshornið og heyrði alt saman. Annars eru húshornin einhver athyglisverðustu áfangar göt- unnar. Þau ættu það skilið að um þau yrði skrifað sérstaklega- Alstaðar þar sem tvær götur mætast, standa þau þögul og hátíðleg og hlusta a hvíslið i götunum beggja megin við sig. Eftir að rökkv- að er, depla þau rauðbleikum glugga-augum hvort framan i annað og opnar dyrnar hlusta eftir hverju fótataki mannanna. 12