Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Alžingistķšindi Kaplaskjóls

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Alžingistķšindi Kaplaskjóls

						Forseti: Áður en jeg set fundinn vil

jeg biðja hv. þingmenn um að syngja

þjóðsöng vorn.

Söngur.

Lýsi jeg þá þingfund löglega settan.

Þrír þingmenn hafa sent tilkynningu

um að þeir geti ekki mætt á fundinum.

Tveir þingmenn eru enn ókomnir úr

páskafríinu og einn getur ekki mætt vegna

þingmannaveislunnar í gærkvöldi. Fjar-

vistir þingmanna eru því allar lögmætar

og heldur hver sínu þingfararkaupi.

Fundarbók síðasta fundar hefur legið

frammi og hafa nokkrir þingmenn bætt

dálitlu inn í hana og aðrir strykað sumt

út og þar sem ekki er meira við hana

að athuga, skoðast hún sem samþykt.

Aður en gengið er til dagskrár vil jeg

leyfa mjer að rifja upp fyrir hv. deild

nokkur atriði í fundarsköpunum, sem oft

vilja falla hv. þingmönnum úr minni.

]eg varð þess var, að hsv. þingmaður

sá, er hjer kom í gær frá nábúa þingi

voru, hneykslaðist átakanlega á ýmsum

afbrigðum frá fundarsköpum, sem hv.

þingmenn leyfðu sjer án samþykkis forseta.

]eg bið hv. þingmenn taka vel eftir.

34. gr.

Þingmenn skulu sitja í sætum sínum

sem oftast, en ganga hljóðlega um, þá er

þeir þurfa að fá sjer göngutúr, enda er

bannað að ganga á mannbroddum í deild-

inni.

53. gr.

Eigi  skulu  þingmenn ræða svo hátt á-

hugamál  sín,  sín á  milli,  eða hlægja,  að

ræðumaður heyri ekki til sjálfs sín.

204. gr.

Eigi  mega þingmenn reykja eða tyggja

mat   sinn   á   meðan  þeir  tala  sjálfir,   en

deyi í vindli þeirra af þeim ástæðum,  sjái

ríkissjóður fyrir eldspýtum.

225. gr.

Stauparjett   má   ekki   setja   í  deildinni,

en   þó  má  þessu  breyta  með   afbrigðum

frá þingsköpum.

]eg hefi hjer að eins drepið á nokkur

atriði, en annars hefi jeg hugsað mjer að

láta víðvarpa þingsköpunum, svo þingmönn-

um sparist erfiðið við lesturinn.

Að síðustu vænti jeg þess að þingmenn

geri sjer það að reglu, að mæta hjer á

fundum áður en þeim er slitið, eða fara

ekki af fundi fyr en fundarsetningu er

lokið.

V/erður þá gengið til dagskrár.

Jón  Dúfuson sækir um 300

þús.  króna  styrk til að finna

norðurpólinn   og   koma   með

hann til Kaplaskjóls.

Frsm. 5. þm. Ks.: Sem hinni háttv.

deild mun kunnugt, er norðurpóllinn al-

eftirsóttasti blettur hnattarins, og það ekki

að ástæðulausu. Of fjár er varið árlega til

þess að leita að honum. Nú hefur þingi

voru hlotnast sá heiður, að maður sá, sem

kunnugastur allra er á norðurvegum, sækir

um styrk til þess að finna pólinn og koma

með hann til Kaplaskjólsstranda. ]eg vona

að   hv.   deild   sjái  hve  mikill sómi okkur

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16