Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Alžingistķšindi Kaplaskjóls

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Alžingistķšindi Kaplaskjóls

						17

Alþingistíðindi Kaplaskjóls

18

fram þetta frumvarp, skal jeg geta þess,

að beiðni hefir komið frá nokkrum þing-

mönnum um að jeg læsi upp frumvarpið

þareð þingmönnum hefir ekki unnist tími

til að lesa það yfir vegna þingveislunnar

í gærkveldi.

Frumvarp til laga um almennar kynbætur.

1.  gr.

Hvert ungviði á öllu landinu skal af

kynbóta foreldri komið vera.

2.  gr.

Sett skal á stofn sjerstakt ráðherraem-

bætti er fer með mál þessi öll, enda heiti

sá ráðherra, kynbótaráðherra.

3.  gr.

í hverjum hreppi skal nefnd skipuð, sú

er ákveður hverjir skuli afkvæmi eiga og

kynhæfir kallast, og skulu þeir skrásettir

í tíundabók hreppsins.

4.  gr.

a.    Kynbótaráðunautar skulu 3 vera í

fjórðungi hverjum, allir sjerfróðir, og

leiðbeini þeir í kynbótum —.

b.   Skulu þeir ákveða kynhæfi, kynblönd-

un og semja reglur um kynbönn

hver í sínu umdæmi og annist þeir

merkingar allar.

5.  gr.

011 þau, er ekki fullnægja settum kyn-

bótakröfum skulu laus ganga, en í girð-

ingu sett við fyrsta brot. Nú er brotið

endurtekið og skal það brot varða alt að

lífláti og komi ekki náðun til greina.

6.  gr.

Þau afkvæmi, sem ekki eru afsprengi

kynbætenda, skulu þegar á unga aldri út-

flutt, annaðhvort til Canada eða ísl. ný-

lendunnar í Grænlandi. —

7.  gr.

Undanþágu frá lögum þessum getur

kynbótaráðherra gefið, sjeu sjerstakar

ástæður fyrir hendi. —

8.  gr.

Hreindýr og erlendir officerar eru und-

anþegnir lögum þessum. —

9.  gr.

Öll eldri lög skulu úr gildi numin með

Iögum þessum.

10.  gr.

Lög þessi öðlast gildi eftir 9 mánuði.

Lög þessi mæla með sjer sjálf og þurfa

því lítilla skýringa við. Þess skal getið að

nábúaþing vort samþykti í fyrra lög sama

efnis, en það náði að eins til kynbóta á

hestum. Nú munu sömu þingmenn vera á

ferðinni með frumvarp eins víðtækt og

þetta, vegna þess hve vel hitt hefir reynst,

og hefir oss nú tekist að vera á undan

þeim með frumv., svo ekki verði sagt um

okkur Kaplskýlinga að vjer sækjum öll

menningarmál vor til annarra —,

Samþ. með einu samhljóða atkvæði.

Heimildarlög fyrir landsstjórn-

ina til að veita Vesturhluta

Reykjavíkur rjett til grásleppu-

veiða í landhelgi Kaplaskjóls.

Flm. 6. þm. Ks.: Þessi bræðraþjóð vor,

sem ennþá berst þeirri sömu baráttu er

vjer höfum háð um langt skeið, áður en

að vjer öðluðumst sjálfstæði vort, hefir

nú leitað á náðir vorar um lítilsháttar

ívilnanir, sem heita má að útlátalaust sje

fyrir oss að veita.

Fiskimið þeirra eru nú að þrotum kom-

in, enda hefir sambandsþjóð þeirra notað

sjer  þau  ósleitilega.  Vjer þekkjum einnig

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16