Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Alžingistķšindi Kaplaskjóls

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Alžingistķšindi Kaplaskjóls

						25

Alþingistíðindi Kaplaskjóls

26

Snorra  Sturlusonar

í  Odda.   ]eg  bjóst

3. þm. Ks.: ]eg hafði ekki búist við því

að jeg mundi þurfa að tala í þessu máli, en

það hefir ýmislegt komið fram í umræð-

unum, sem knýr mig til að segja nokkur

orð.

Mjer er þegar orðið það ljóst, að stjórnin

ætlar sjer að bregða fæti fyrir þetta mál

hjer í deildinni og má segja að það komi

úr hörðustu átt. ]eg leyfi mjer að líkja

slíku atferli við víg

eða Þorraþrælsbylinn

satt að segja aldrei við því, að þessu

sjálfstæðismáli voru yrðu brugguð banaráð

á hærri stöðum, þó maður sje nú farinn

að venjast ýmsu úr þeirri átt, og vænta

megi alls af þeirri stjórn, sem drap skól-

ann á Hveravöllum, þar sem öll skilyrði

voru fyrir hendi, bæði sjóðandi vatnið og

íslensk sveitanáttúra. Því það er vísindaleg

reynsla fengin fyrir því, að hverir eru aðal-

skilyrðið fyrir skólahaldi og mjer liggur

við að segja eina skilyrðið. Því stærri, sem

hverirnir eru, því æðri skulu skólarnir

vera; sbr. háskólann við Geysir, sem hann

Magnús ljet reisa í sinni ráðherratíð. Enda

er það nú efst á baugi hjá þjóðinni, að

koma upp skóla við hverja einustu hvera-

holu á öllu landinu, þó þeir breyti sjer

nú stundum, þessir hverir okkar og sumir

þeirra kulni alveg út.

Áður en jeg sný mjer að aðalmálinu,

ætla jeg að geta þess, að stjórnin hefir

sýnt miklar íviljanir sumum þeim mönnum

sem voru á móti mjer við síðustu kosn-

ingar og lýsi jeg vígi á hendur stjórninni

fyrir slíkt framferði. Ennfremur hefir stjórn-

in látið sjer sæma að demba rakarafrum-

varpinu, alveg óundirbúnu inn á þingið og

hefir þetta valdið afskaplegri truflun á

gervöllu atvinnulífi þjóðarinnar og orsakað

óbætanlegan glundroða og riðlun á allri

flokkaskiftíhgu þingsins.

Þá ber það að ávíta, að ár eftir ár

vanrækir stjórnin að flytja þingið, austur

á sína sveit og koma þingmönnunum burt

úr Reykjavíkursollinum, þó ekki væri nema

dálitinn tíma af árinu. Væri það strax

betra þó ekki væri flutt lengra um set, en

hjerna suður í Kópavog.

Það er líka ærið ásökunarefni hvað

stjórnin er kvykinsk á krossana, sem henni

var trúað fyrir að útbýta alveg purkunar-

laust og súpa bæði innlendir og útlendir

seyðið af því ráðlagi.

Líka verð jeg að átelja það harðlega,

að nýlega hefir stjórnin veitt stækum and-

banningi sendisveinsstöðu við landsversl-

unina og tel jeg það stjórnarskrárbrot.

]eg ætla ekki að fara út í hina hneyksl-

anlegu sambúð stjórnarinnar við þenna

svokallaða Grímseyjarlýð og annað smá-

dót, en — — — (Forseti: Vill þingmað-

urinn ekki snúa sjer að efninu?) ]ú, jeg

er nú að komast að því, — ]eg — jeg

er algerlega á móti stjórninni.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16