Brandari - 28.10.1933, Blaðsíða 1

Brandari - 28.10.1933, Blaðsíða 1
1. árg. 1. tbl. Yestmannaeyjum 28. okt. 1933 T Avarp til lesenda. Síðan kollega vora, „Grægi“ og „Ingjald" leið, hefur skort hér tilfinnanlega bindindissinnað íhaldsblað ineð sans fyrir almennu gríni. Hyggat ,Brandari“ að bæta úr þeirri vöntun eftir mætti; — ekki vautar viljann, og er þá mikið fengið. „Brandari* mun gera sér far um að vera eins og útepitt hundsskinn um allan bæ, með nefið ofan i öilu, sem hann varðar ekkert um. Hann mun af fremsta megni gera grín að mönnum og málefnum þessa bæjar og í þeim efnum láta rigna jafnt yfir réttláta sem rang- láta. Auk þess að flytja giln um menn og málefni hér í bæ, mun Brandari og flytja frumsamdav gamansögur, sem honum berast. Einnig gaman- kvæði og ýmisl. smávegis, sem til skemmtunar má verða. — Jafnframt mun Brandari flytja skopmyndir, þegar honum vex fiskur um hrygg.— Ríðum vér svo úr hlaði með þeirri von, að oss verði hvarvetna vel tekið, eins og vera ber um slikt merkisblað. — Útgef. l.A N U o > ö i \ MS Ai' N -,V;i tCBvOo í Grímudanz. — amatörmynd úr lifinu. — Hún Annamaría var að austan. Hún var allra myndarlegasta stúlka, fagurlega vaxin og fæturnir afbragð. En andlitið — herra trúr! það var óneitanlega iaust við allan óþarfa yndisþokka. — Ennið var lágt og beindi hug- anum helzt aftur til steinaldarinnar. — Augna- brúnirnar voru gráar og kafloðnar, þykkastar milli augnanna, ofan við nefið. — Það var auðsóð, áð hún Annamaría hafði aldrei átt „pin- settu“, og hafði 'potað æfistundir sínar til ann- ars frémur „plokka" brúnir sinar. — Augun vóruj géágræn, kringlótt og flóðu allt- af. — Eyfun minntú mest á útlent hundakynr en nefið, rautt og freknótt, var eins og ósvik- in Skagakartafla. — Neðri vörin var óskiljan- lega stór og huldi gersamlega hina efri. — Ofan á allt þetta bœttust svo fagurgrænar graft- arbóluí og ffúðormar. —' Þegar maður bar önnumaríu saman við fagrar stúlkur, sem annars vóru illa vaxnar, eins og heflaðar fjalir eða hálfnöguð bein, freistaðist maður ósjálfrátt til þess að kritiséra ráðstafanir guðs almáttugs. — Oneitanlega hefði andlit önnumaríu átt betur við líkami slikra ineyja — og hinsvegar andlit þoirra

x

Brandari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Brandari
https://timarit.is/publication/690

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.