BORGIN er nýtt tímarit, sem heilsar lesendum sínum með þessu hefti. BORGIN kemur úl mánaðarlega, minst sextíu og fjórar síður í senn og verður þannig langsamlega stærsta tíma- ritið, sem hjer hefir verið gefið út fram að þessu. BORGIN er sjer þess meðvitandi að þröngt muni vera orðið á íslenskum bóka- og blaðamarkaði og hún veit að því aðeins getur hún vænst þess að ná hylli kaup- enda sinna, að.hún geri sjer far um^að uppfylla þær kröfur, sem vandlátir lesendur gera til timarita nú á dögum. BORGIN mun þessvegna leggja áherslu á vandaðan frágang og kappkosta að sníða efni sitt við hæfi sem flestra kaupenda. Henni er ætlað að flytja vandaðar mynd- ir, stuttar greinar um menn og mál, frásagnir um ýmislegt, sem markvert skeður, utanlands og innan, Ijóð og sögur, frumsamdar og þýddar, íþróttafrjett- ir, tískunýjungar og fleira, sem mönnum nú á tím- um er hugleikið. BORGIN Verður seld í tausasölu á kr. 1.00 hvert hefti, en áskriftaverð er kr. 2.50 ársfjórðungslega eða kr. 10.00 á ári. Rit þetta verður þannig að tiltölu hið ódýr- asta í sinni röð hjer á landi.