Rozsi Cegledi heitir hún, hin unga og fagra kona, sem hjer birtist mynd af, og sem um þessar mundir heldur pianó- hljómleika í Reykjavík. Hún var aðeins fárra ára er hún hjelt fyrstu hljómleika sina og upp frá því hefir iif hennar veriö óslitið æfintýri frá einum sigri til annars, og þó hún sje enn ekki eldri enn 19 ára, þá eru vandfundin sterkari hrósyrði en þau, er erlend blöð velja yndisþokka hennar og hinni ástríðufullu og máttugu list hennar. Rozsi Cegledi er ungversk að fæðingu og uppeldi en i æðum henn- ar rennur austrænt tatara"-blóð, eins og list henn- ar og sjerkennileg fegurð bendir til. - Er koma hennar hingað ógleymanlegur viðburður öllum sem hljómlist unna. 20