og kaffihúsum gerast fyrstu og lcngstu kynningarnar við Spán- vcrjann. En ef hann hleypir þjer inn fyrir dyr sínar, þá ertu vel- komnari þar en í hús nokkurs annars manns, er þú gistir hvar sem er í okkar álfu. Frá því að þú stígur inn fyrir þröskuldinn og til þess er hann fylgir þjer aftur til dyra með hátíðlegri al- úð, sem stingur kynlega í stúf við galsa hans á gildaskálum, hefur hann lagt sig í lima við að gera þjer hvert augnablik sem >i ægjulegast. Með gamni, með glensi, kynlegum sögum, með einkennilega barnalegu gorti, með ástúð, sem undir niðri er bíandin með þykkju gamals hcfðingjadrambs, gerir hann það að æruatriði, að þú farir út úr húsi hans með tilfinnnguna um það, að göfugri mann hafir þú elfki gist og hjer viljir þú koma aftur". Hvað snertir mína persónu- legu kynningu af Spánverjum og fpænskri gestrisni, þá skrifa jeg fi'slega undir þessa lýsingu, það sem hún nær. Verðlaun! Stafirnir á forsíðu þessa heftis eru gerðir úr nokkrum hundr- uðum ljósmynda af fólki á öllum aldri, körlum og konum, úr Reykjavík og víðar að. Þetta er einstakt tækifæri fyrir yður til að ganga úr skugga um hversu mannglöggir þjer eruð! Vjer gefum yður kost á að vinna til verðlauna fyrir að tilnefna flest nöfn, þeirra, sem myndirnar eru af. Verðlaunin verða i þrennu lagi og skiftast þannig: 1. verðlaun kr. 50.00 2. ------ 30.00 3. ------ 20.00 Sendið oss ráðningar yðar ásamt nafni yðar og heimilisfangi fyrir 15. des. nk. Verða þá birt nöfn þeirra, er til verðlaunanna hafa unnið. 30