Langt er siðan byrjað var að tala um að reisa fljótandi eyjar" i Atlants- hafinu, sem gætu orðið áfangastaðir á hinni löngu flugleið milli heims- álfanna. Nú hefir þýskur verkfræðingur, DR. GERBE, komið fram með þá nýstárlegu hugmynd að mynda eyjar úr ís með nýtísku frystiað- ferðum, til þessara afnota. Er til þess æltast að byrjað sje á frysting- unni að vetri til svo auðið ,sje að hagnyta sjer hinn núttúrlega kulda, en þegar ismyndunin er komin í gang heldur kuldi sá/sem ísinn hefir að geyma, frystingunni við af sjálfu sjer. Ætlast er til að eyjarmyndunin taki mjög lítinn tíma og að þar verði nægilegt rúm fyrir hótel, lend- ingarstöðvar, vita og veðurfræðisstofnun eins og myndin á að sýna. 31 >