Hvað verður dansað í vetur? Dansinn hefir á seinustu árum tekið miklum breytingum. Þróunin hefir gengið í þá átt, að gera dansinn hgari, hreyfingarnar ljettar og sporin einföld, til þess aS sem flestum veitist auðvelt að dansa vel og ásjálega. Til samanburðar er þess skamt að minnast, að dansað var, að því er virt- ist, helst til að svita sig og hreyfa sem hrottalegast. Þá var það heldur ekki óalgengt að pörin hrösuðu í dansinum eða jafnvel duttu, svo var á- kafinn mikill að komast áfram. En jafnframt því sem dansarnir verða ljettari að dansa og gera minni kröfur til krafta og úthalds dansendanna, vaxa kröfurnar um fagrar og mjúkar hreyfingar. Því einfaldari og óbrotnari sem dansinn er að frum- atriðum, því meiri nauðsyn er til, að menii læri að vanda sig með spor- in og læri sem mest af tilbrigSum til að gera dansinn fjölbreyttari og til þess að tifa ekki altaf sama rælinn". Það dugar t. d. ekki aS dansa fox- trott eins og maður væri í kappgöngu. Frumatriðið í nýtísku dansi er það að standa rjett, áður en byrjað er. Herrann skal standa beinn, halda hægri hendi við mittisstað dömunnar. Með vinstri hendi heldur hann um fingur dömunnar, að neðan með lóf- anum, að ofan með þumalfingri. Hendurnar vita á þann hátt saman og handleggjunum er því haldið úl með olnbogann niður en ekki út til hlið- anna, (af nærgætni við aðra, sem dansa á gólfinu), og ef þröngt er, skal olnbogunum haldið upp að síðunni. Hreyfingarnar stafa allar frá fótunum, og skal því varast að ypta öxlum eftir hljóðfallinu eða hreyfa sig á ann- an hátt, nema nauðsynlegar jafnvægishreyfingar með öxlunum, t. d. i tangó. En hvaða dansar verða þá aðallega dansaðir í vetur? Foxtrot verður lítið dansaSur, nema sem Slow fox, eða í dálítið hraS- ara hljómfalli. Á þeim dönsum hafa engar breytingar orSiS upp á síS- kastiS. Tango er ennþá dansaSur afarmikiS og bafa komið fram nokkur ný tilbrigði, annars byggist hann enn á gamla argentinska tangóinum og hefir lítið fjarlægst hann. Vals er enn í miklum metum, bæði enskur vals og þýskur. Hinn nýi dans Rumbu ruddi sjer mikiS til rúms í fyrravetur og þaS er ekki sýnilegt aS vinsældir hans fari minkandi. Byggist hann á sömu frumairiSum og Black Bottom, eitt skref til hægri hliðar (herrans) og tvö til vinstri. Einkennilega dillandi hreyfingu er náS meS sjerstakri beitingu iljanna og hælanna. Allir þessir dansar hafa þann kost aS þeir eru auSveldir og fljótlegt að læra þá. Þer menn eru að vísu til, sem ekki kunna að dansa, en það er tæplega lengur talinn nokkur kostur. Olluni ber nú saman um, að nauð- synlegur skóli í umgengni og framkomu sje þaS aS læra að dansa, enda getur annað varla talist vansalaust af mentuðum manni. Hinu má held- ur ekki gleyma, að það getur koniið fyrir kaldlyndasta fólk aS verða ást- fangið og þá er dansinn oft iieppilegasta leiðin til viðkynningar, auk þess sem fáir una sjer betur en í dansi við veru, sem þeir elska. En umfram alt vildi jeg hvelja þá, sem byrja að læra dans, að læra vel vals, tangó og slow fox, l)ví að það eru þeir dansarnir, sem fyrirsjáanlegt er, aS verSa lengi dansaSir. ÞaS er lika þeir dansar sem best sýna þá stefnu, sem dansinn hefir þróast eftir. sem sje mýkt í hreyfingum og söng- næmt hljómfall. Sig. Guðmundsson. 50