Búfræðingurinn - 01.01.1940, Blaðsíða 16
10
BÚFRÆÐINGURINN
nemendur voru mættir, er útskrifast höfðu fyrir 1907,
auk þedrra Hjartar og Gísla, er áður voru nefndir: Vig-
fús Guðmundsson 'frá Engey, Magnús Jónsson i Borgar-
nesi, Þórmundur Vigfússon að Bæ, Brynjólfur Guðbrands-
son í Hlöðutúni, Sigurjón Ivristjánsson í Krumshólum,
Tómas Vensberg á Straumi og Jörundur Brynjólfsson í
Skálholti. Auk þeirra, sem nú liafa verið taldir, voru
þarna viðstödd nokkur af vinnuhjúum Halldórs Vil-
iijálmssonar, þar á meðal Kristjana .Tónatansdóttir, Þor-
björg Bjarnadóttir, Guðbjörg Sigurðardóttir og Helgi
Jónsson.
Gjafir og skeyti. Margar og góðar gjafir hárust skól-
anum i sambandi við afmælishátíðina, auk líkneskis Hall-
dórs Vilhjálmssonar, sem áður er nefnt. Þessar voru
lielztar: tJtskorinn ræðustóll eftir Rikarð .Tónsson, frá
Búnaðarsambandi Borgarfjarðar og Mýra- og Borgar-
fjarðarsýslu. Sjóður að upphæð kr. 5000.00 frá hörnum
Halldórs Villijálmssonar; skal honum varið til þess að
styrkja Hvanneyringa til framhaldsnáms í búfræði. Sjóð-
ur að uppliæð kr. 710.00 frá nemendum þeim, er útskrif-
uðust 1918. Afhentu þedr Sigurður Hólmsteinn Jónsson og
Þórarinn Georg Jónsson sjóðinn fyrir hönd þessara nem-
enda. Skyldi hann leggjast við Styrlctarsjóð Hvanneyringa
og á þann hátt vera til þess að styrkja Hvanneyringa til
framhaldsnáms í húfræði. Sjóður að upphæð kr. 1000.00
frá Búnaðarfélagi íslands, og skal verja honum til þess
að auka smíðakennslu við skólann. Stjórn Hvanneyrings
var heimilað að veita kr. 500.00 frá félaginu í sama til-
gangi. Björn Bjarnarson frá Grafarholti hóf sjóðmyndun,
er hann nefndi Steðjasjóð, einnig til að auka smíðakennslu
við skólann, og safnaðist í liann kr. 242.00.
Um 30 heillaskeyti hárust skólanum i tilefni af afmæl-
inu frá stofnunum og einstaldingum. Af þeim síðarnefndu
voru flest frá Hvanneyringum.
Óskar Gíslason myndasmiður tók af hátíðahöldunum
kvikmynd og nokkrar ljósmyndir.
Guðm. Jónsson