Á R M A N N 1» $ 't 1. ms Hinir cfnilegu piltar úr félaginu, sem unnu drengjamótiS. Ármenningar og hlutu þeir allir verðlaun, en aðeins 1 meistarastig hlutum við að þessu sinni og var það Karl Vilmundarson, sem það vann. Bæjakeppni drengja fór fram í Vestmannaeyjum aö' þessu sinni. Margir drengir fóru héðan til keppn- innar og þar af 7 Ármenningar. Úrslit urðu þau, að Vestmannaeyingar unnu. 9. septemher fór fram Kappróðrarmót íslancls. Keppt var um hið fagra Kappróðrarhorn íslands. Aðeins 3 lið, öll frá Ármann, kepptu. Því miður hafa okkar góðu og skæðu keppinautar, K.R.-ingar, slegið of slöku við róðurinn í sumar, en vonandi láta þeir okkur ekki vinna eins fyrirhafnarlítið næsta ár. Úrslit urðu þau, að A-liðið vann, en það skipa: Asgeir Jónsson, Max Jeppesen, Axel Grimsson. Óskar Pétursson forræðari og Guðmundur Pálsson stýrimaður. Annað var C-liðið og þriðja B-liðið. A sundmeistaramótinu í hyrjun októher tóku þátt nokkrir Ármenningar og hlutu þeir tvenn 1. verð- laun, fimm 2. verðlaun og fern 3. verðlaun. Hefi eg nú drepið á flest það, sem máli skiftir af sýningum og kappmótum, sem félagið hefir tek- ið þátt i. Eitt er það, sem skyggir á sigra okkar á árinu og það er, hve mikil mannfæð hefir ver- ið hjá okkur í frjálsum íþróttum meðal fulllorðinna. Bót er í því að eiga svo stóran hóp ungra efnilegra manna, sem viÖ eigum nú á uppleið. Við þurfum að fá enn almennari þátttöku í frjálsum íþróttum. Nú í vetur hefir Jón Þorsteinsson tekið að sér kenslu í þessum flokki, og efast eg ekki um, að hann með sínum alkunna dugnaði komi honum þaí5 áleiðis, að við skipum þar að nýju tiginn sess með- al þeirra, sem hestir eru. Og eitt enn: Það má ekki koma fyrir oftar, að svo stórt og voldugt íþrótta- félag sem Ármann er, geti ekki sent sveit í Víða- vangshlaupið á sumardaginn fyrsta. Það er varla vansalaust fyrir okkur að senda ekki ár eftir ár í það hlaup, sem er einhver skemtilegasta íþrótta- keppni ársins. Félagsmeun! Látið starfsemi liðna ársins verða ykkur hvöt til fjölda margra áfreka á hinu ný- liyrjaða starfsíiri. Jens GuðbjörnssQn. Stjórn Skíöasambands Noregs hefir hoðið Skíðafélagi Reykjavíkur að senda nokkra menn til Noregs á skíðanámskeið, sem halda á í vikunni milli jóla og nýárs í Mjölfell við Berg- ensbrautina. Námskeið þetta sækja þeir einir, sem ætla að verða skíðakennarar. Verður kennt þarna: stökk, ganga og slalom; auk þess verða fyrirlestrar á kvöldin. Skíðafélagið hefir 1)oðið félagi okk- ar að senda einn mann, sem við munum þiggja með þökkum,