Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Įrmann

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Įrmann

						A R M A N N

þessu líkt. Þarna voru þá, komnir út á bát annars

staðar Maggi Brynjólfs, Guðjón Runólfsson og

nokkrir fleiri. Hvort þessi óp okkar þarna alveg

út við linuna hafa haft nokkur áhrif eða ekki,

urðu þeir þó nr. 2 í þessum róðri.

Sendiherra íslands, Sveinn Björnsson, var við-

staddur kappróðurinn fyrri daginn, og til hans vor-

um við allir boðnir nokkrum dögum fyrir heim-

ferðina. Sendiherra var hinn alúðlegasti við okkur

og sýndi mikinn áhuga fyrir róðraríþróttinni hér

heima. Hann gaf okkur úrklippur úr norsku blaði,

þar sem farið er nokkrum mjög lofsamlegum orð-

um um íslensku ræðarana.

Eftir mótið áttum við nokkra daga eftir, til þess

að lítast um í Kaupmannahöfn, og er ekki hægt að

segja annað, en að við höfum notað þá sæmilega.

Við fórum á ýmsa skemtistaði, svo sem Tivoli,

Lorry 0. fl., og ekki má eg gleyma þvi, að við

gengum á söfnin af mikilli skyldurækni. Til Svi-

þjóðar brá hópurinn sér einn góðviðrisdag i flug-

vél, og nutu menn ferðalagsins til fullnustu. Til

álita kom, hvort ekki mundi eins gott að kaupa

sér eitt hringflug yfir Kaupmannahöfn, en Svíþjóð-

arförin fékk öll atkvæðin, þegar til kom. En til

þess að jafna þetta upp, fórum við nokkru seinna

upp í turninn á „Vor Frelsars Kirke", en þangað

upp eru 400 þrep, og ágætt útsýni þaðan yfir mik-

inn hluta borgarinnar, og sér í lagi yfir höfnina

og Amager.

Einn dag skruppum við til þess að skoða Carls-

berg verksmiðjurnar. Það er nú meira fyrirtækið.

Þar er hægt að framleiða 2 miljón flöskur af öli

á dag og J-4 miljón af sódavatni eða sítrón, og er

það sent út um allan heim, nema til Islands. Áður

en gestir skilja við verksmiðjuna, er þeim ávalt

boðið inn á veitingasali og er þar veitt öl og aðrir

drykkir af mikilli rausn. Að kvöldi þess dags bauð

Röbenhavns Roklul) okkur í skemtiferð á kappróðr-

arbátum út í Trekroner, sem er rétt utan við höfn-

ina, en til þess að komast þangað frá róðrarhúsi

K. R., þarf að fara í gegn um alla höfnina, eða

frá   suðurhöfninni   og   út   fyrir   norðurhöfnina.

Ferðalag þetta var hið prýðilegasta í alla staði

og-var sérstaklega skemtilegt að róa í gegnum upp-

lýsta höfnina á heimleiðinni. Trekroner er gamalt

vígi, með gömlum fallbyssum, og var það talið

óvinnandi á sínum tíma.  Þar er nú  skemmtistaður

Kaupmannahafnarbúa,    og    er    hann    mjög    mikið

sóttur.

Við skoðuðum bátahús stærstu félaganna í Kaup-

mannahöfn. Þau eru mjög reisuleg, og öll með

nýtísku útbúnaði, sum jafnvel með vatnsþróm til

róðraræfinga að vetrinum, og svo stór, að þau rúma

alt að 50 báta.

Nokkur félög voru það sérstaklega, sem létu sér

ant um okkar hag, og sem við stöndum í þakklætis-

skuld við. Þau ýmist lánuðu okkur báta, þjálfara,

leiðsögumenn eða annað, sem að gagni mátti koma,

og alstaðar  fengum  við  hinar  hlýlegustu  viðtökur.

Heim á leið lögðum við með Gullfossi laugar-

daginn 24. júlí og komum til Reykjavíkur að kvöldi

dags  30.  júlí.

Ólafur Þorstcinsson.

Hringferð Glímufél.

Armann i sumar.

Sýningarfarir Ármanns, bæði utanlands og inn-

an, eru fyrir löngu orðnar landskunnar. Utanfarir

glimumanna og fimleikamanna hafa aukið álit fé-

lagsins og enda að verðleikum, því þær hafa ávalt

verið mjög glæsilegar. En utanfarirnar hafa gert

meira. Þær hafa aukið utanfararþrá margra æsku-

manna, bæði i  félaginu og utan þess.

Sýningarfór Glímufélagsins Ármann í sumar var

að vísu engin utanför, en samt sem áður prýðileg

íþróttaför, og að líkindum ógleymanleg öllum þátt-

takendum. Sjálfsagt hefir aldrei neinum þátttakenda

í förinni komið til hugar, að hann eða hún ætti

á svo dásamlegan hátt eftir að kynnast íslenskri

gestrisni í svo ríkum mæli, sem við gerðum í þess-

ari för og ekki mun mörg af okkur hafa órað fyr-

ir því í vor, að við á jafnódýran hátt gætum séð

fegurð íslenskra sveita og hrífandi tign öræfanna,

og við nú gerðum.

Við byrjuðum að æfa undir Austurförina snemma

í júní. En flokkarnir voru áður í góðri æfingu eft-

ir Lands-fimleikamótið. Við æfðum 4—6 sinnum í

viku, þar til við fórum, og enginn dró af sér, því

					
Fela smįmyndir
Kįpa I
Kįpa I
Kįpa II
Kįpa II
Auglżsing
Auglżsing
Auglżsing
Auglżsing
Auglżsing
Auglżsing
Auglżsing
Auglżsing
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Auglżsing
Auglżsing
Auglżsing
Auglżsing
Auglżsing
Auglżsing
Auglżsing
Auglżsing
Kįpa III
Kįpa III
Kįpa IV
Kįpa IV