A R M A N N 15 Þýskalandsför Ármanns 1929. Með því að svo langt er um liðið síðan þessi för var farin, þykir mér tilhlýðilegt að nefna þá menn, sem þátt tóku í henni, áður en frásögnin hefst. Glímu- og f imleikamennirnir voru þessir: Friðrik Jcsson, Georg Þorsteinsson, Helgi Kristjásson, Jón Guðmann Jónsson, Jörgcn I^orbcrgsson, Konráð Gíslason, Óskar Þprðarson (stóri), Óskar Þórðarson (litli), Ragnar Kristinsson, Sigurður Thorarcnscn, Stcfdn E. Jónsson, Valdimar Kr'ístinsson, Viggó Nalhanaclsson, Þorsteinn Einarsson og Þórsteinn Kristjánsson, samtals 15. Fararstjóri var Jón Þor- stcinsson, íþróttakennari og stjórnaði hann jafn- framt sýningunum, en Lúðvig Guðmundsson skóla- stjóri var fyrirlesari fararinnar. Auk þeirra, sem nú hafa verið nefndir, tóku þeir Jcns Guðbjörns- son form. Ármanns og Árni Óla blaðamaður einn- ig þátt í förinni, ennfremur Rcinhard Prinz, sem sá um allan undirbúning í Þýskalandi. Það var kl. 6 að kvöldi dags, hinn 26. ágúst, að Gullfoss lagði frá hafnarhakkanum í Reykjavík með okkur Þýskalandsfarana innanborðs. Allir vorum við eins klæddir, i brúnum jakkafötum, með bláar húfur og var Ármannsmerkið fest i þær. Sjóferðin til Leith varð ýmsum erfið, því sjór var úfinn og gerðust ])á flestir kapparnir ærið framlágir. Menn urðu því fegnir, er þeir komust á þurt land í Leith, sem var á hádegi þann 30. ágúst, og þótti þó flest- um borgin heldur óglæsileg. Viðstaðan var stutt, en þó nógu löng til þess að menn gátu jafnað sig eftir sjóvolkið, og kl. 8 sama dag var haldið áleiðis til Kaupmannahafnar, en þangað var komið 2. sept. Þar vorum við um kyrt í einn dag, en í býtið morg- uninn eftir var allur hópurinn kominn í járnbraut- alrest á leið til Þýskalands. Fyrsta borgin, sem við áttum að sýna í, var Kiel, og komum við þangað eftir 13 tíma járnbrautarferð og voru þa ílestir búnir að fá nóg, jafnvel þeir, sem aldrei höfðu í járnbrautarlest komið og þráðu. að reyna slíkt far- artæki. í Kiel, eins og annarsstaðar, sem við sýnd- um, var okkur skift niður á ýms heimili, sem boð- ist höfðu til að hýsa íslendingana á meðan þeir stæðu við, Hinn 4. sept. var fyrsta sýningin, sem eingöngu var fyrir liörn, en daginn eftir var opinber sýning, og sóttu hana um 1000 manns. Allar sýningarnar hófust með þvi, að flokkurinn gekk inn á sýning- arsvæðið og heilsaði með íslenska fánanum. Því næst ávarpaði Lúðvig Guðmundsson áheyrendurna með nokkrum orðum, en að því loknu sungum við íslenska þjóðsönginn. Gengum við síðan út af svið- Þýskalandsfarar Árnianns. Myndin er tekin á tröppu Háskólans í KleL