i Poki þjóoernisgreining; nú þurfum samtaka vér, og öreiganna eining um allan heiminn fer. Og hvorki' af kóngs né kirkju völdum mun kúgun illri ráðin bót. Vcr gæfu vorri' í höndum höldum og hefjum brandinn þrælkun mót. Nú skulum starfsins launa vér leita, og látum falla auðvalds múr. Vér skulum járnið hamra heita og hrífa andann böndum úr. Þoki o. s. frv. Oss Mammons jarlar þjó og þjaka, og þeirra er rikið, tign og vald, en neyðin ein er næg til saka, og neyð á ekkert lausnargjald. En andi vor með orðtaki gildu oss annað boðorð lét i té: Að enginn réttinn eigi' án skyldu, og engin skylda' án réttar sé. Þoki o. s. frv. En andstyggö sér i sessi hossar, hið seyrna ríki gulls og stáls. Er kyn, þótt haturs brenni blossar og oáu eiugos '.icirt^^.i'.í? Þvi auðsins herrar alls ekkert gera nema' arði' að ræna verkalýð, en það, sem rétt er, rétt skal vera og ránið aftur heimt um síð. Þoki o. s. frv.