Og eining vor skal færa friðinn, já, frið með oss, en kóngum stríð. Vér verkfall gera Iátum liðin og látum hervald enda' um síð. Og hervalds-lyddur láta oss vilja út leiða hljóð til slátrunar, en brátt þær finna skulu' og skilja, hvcrt skotið kúlum verður þar. Þoki o. s. frv. Já, verkafólk til sjós og sveita, vér sækjum fram um lokuð hlið, og vor skal Jörðin vera' og heita, en víkja burtu snikjulið. Lát hrægammana hverfa og eyðast, sem höggva' i fólksins opin sár, en sólskinsljóma' um löndín breiðast við ljósrar dýrðar morguns-ár. Þoki o. s. frv. Jakob. Jóh. Smdri fslenzkaði. Alþjóðasöngurinn var ortur árið 1871 til hvatningar, þegar sveltandi lýður Parisarborg- ar gerði tilraun til alþýðubyltíngar (kommun- axBó"-uppr3i£ni5). Höfundurinn, Eugéne Pottíer, lifði það, að jafnaðarmönnum i Kussiai.di *.t)'M að velta af sér oki auðvaldsins og stofna ör- eigaveldi. Var honum þá boðið þangað í heið- ursskyni.