Ranða tvistirnið. Karl Marx og Frledrteh Engefs. Ekkert sjálfsagðara getur hugsast en það, aö ársrit félags, sem ætlar ser að fást við útgáfu bókmenta í anda hins nýja tíma, sem mólaður er svo mjög af menningarstefnu al- þýðustéttarinnar, jafnaðarstefnunni, sýni þeim tveimur mönnum, sem með sanni mega teljast alt í senn, spámenn, hðfundar og fyrstu oraut- ryðjendur þeirra vísinda, er allar markvissar bókmentir nýtímans eru runnar upp af, fyrst og fremst þá ræktarsemi, sem riti þessu er m. a. smátt og smátt ætlað að votta helztu brautryðjendum alþýðuhreyfingarinnar hérlend- is og erlendis fyrr og nú, með því að birta lesendunum myndir þeirra og segja frá aðal- dráttunum í æfi þeirra og baráttu. Þessir tveir menn eru hið rauða tvistirni á morgun- himni hinnar nýjustu sögualdar, baráttufélag- arnir Karl Marx og Friedrich Engels, höfund- ar hinnar svokölluðu vísindalegu jafnaðarstefnu nútímans, Verður hér á eftir mjög stuttlega rakinn æfiferill þeirra eftir frásögn fróðustu manna og reynt að fara með sem sannast og réttast, svo sem sjálfsagt er og skylt, er um þá menn ræðir, sem mátu sannleik og réttlæti öllu æðra, og þó að sá, er þetta ritar, telji sig að visu til þessa verks mjög lítt færan, þá vurð að tjalda þvi, sem til var, til verksins, er það kallaði að. -- 11