ur rannsóknaraðferð. Um þær hafa verið rituð ógrynni bóka. Annars vegar hafa þær verið skýrðar og við þær aukið af rannsóknurum meðal jafnaðarmanna, svo sem Kautsky, Lenin og fleirum, en hins vegar hafa þær og orðið fyrir magnaðri gagnrýni af hálfu svo kallaðra hægfara jafnaðarmanna eða umbótasinnaðra, endurskoðunarsinna" (Bernstein), og vitanlega einkum af hálfu auðborgaranna; þó hefir hjá hinum síðar nefndu náttúrlega fremur <erið um andóf en gagnrýni að ræða. En um álit fræðimanna yfirleitt á kenningum Marx's er það að segja, að framan af þótti mörgum þær næsta hæpnar, en eftir þvi, sem þær hafa verið athugaðar betur, hafa æ fleiri aðhylst þær, enda hafa þær orðið þvi skiljanlegri, sem fé- lagslegri þróun hefir undið Iengra fram. Er nú svo komið, að um ýmis efni þjóðfélagsmála er kenning Marx's orðin sama sem þekkingin um þau. Karl Marx átti alla stund frá því, að hann gekk í lið með alþýðu allra landa og skifti kjörum með henni, við mjög örðug kjör að búa, eins og geta má nærri um mann, sem elur hálfan aldur sinn í útlegð. Á engan iiátt sér þess þó staði á verkum hans. Á rannsóknir hans hafa hin bágu kjör ekki hait nein áhrif í þá átt, að hann viki um hársbreidd frá peiin niðurstöðum, sem skörp rannsóknargáfa bar hann að. Aldrei ber á neinni undanlátssemi við yfirrdðastéttina, og var þó kona hans systir eins af höfðingjum Þýzkalands á þeim árum, aðalborin. Af tryggð hennar við hann gegnum alla baráttuna og af öllu. er segir af 16