og smátt með, jafnaðarstefnunnar, eru ekki annað en drög, tekin saman meðfram til þess að koma mönnum af stað til þess að leita sér frekari fræðslu um kenningar þeirra og starf- semi, en jafnframt til þess að láta hinum, sem ekki hafa tök á að afla sér ýtarlegri þekkingar, nokkra úrlausn í té. Það má kallast skylda hvers jafnaðarmanns og alþýðusinna að reyna að öðlast sem mest kynni af boðskap þeirra og leiðbeiningum um lausnarbaráttu alþýðu- stéttarinnar, stéttabaráttuna, hlutverk hennar og sigurvonir, enda er ekki annað ráð vissara til þess að afla sér dugandi vopna í úrslita- baráttunni, er nú er hvarvetna hafin, við höfuð- fjanda allrar alþýðu allra landa og erkióvin þessara ódauðlegu forystumanna hennar. H. H. Myndirnar ef Marx og Engels, sem fylgja með riti þessu, eru teknar eftir höggmyndum, er sýndar voru á sýningu í Berlín í haust, sem leið. Þær eru gerðar af þýzkum iafnaðarmanni, Anatole Du- bois, og þykir hann hafa náð mjög vel hinu serkennilega og þróttmikla í svip þessara miklu forvigismanna alþýðunnar, enda segja gamlir flokksmenn, sem sóð hafa þá fólaga, að mynd- irnar séu mjög likar. 20