Birtist hér útdráttur úr skýrslu forseta, Jóns Baldvinssonar: Skýrsla torseta. Sambandsstjórn sú, er kosin var á sambands- þingi 1928, hefir, að undanteknu því, sem skift er störfum með henni með sjálfri kosningunni, skift með sór verkum svo, að Pétur G. Guð- mundsson hefir annast ritarastörfin, en Stefán Jóh. Stefánsson hefir haft gjaldkerastörfin með höndum. Þau 2 ár, sem liðin eru, síðan þessi stjórn var kosin, hafa að vísu verið viðburðarik, en þó mun ég hér að eins gefa skýrslu um störfin síðara árið sakir þess, að ég á aukaþinginu 1929 gaf skýrslu um fyrra árið. Á síðara árinu fóru fram bæjarstjórnarkosn- ingar um land alt, sem voru mjög þýðingar- miklar fyrir Alþýðuflokkinn vegna þess, að lög- tekið var á alþingi 1929, að kosningarrétt skyldu allir hafa 21 árs og eldri, og jafnframt afnumið, að þeir, sem stæðu i skuld fyrir ó- greiddum fátækrastyrk, væru sviftir kosning- arrótti. Það var gömul krafa Alþýðuflokksins, sem hér var loks tekin til greina, krafa, sem hafði þegar komið fram á fyrsru þingum, er flokkurinn átti fulltrúa á. Það var og fyrir at- beina flokksins, að þessi merkilega breyting naði að verða að lögum. Bæjarstjórnarkosningarnar voru háðar af mesta kappi af öllum flokkum, og var það vegna þess, að nú voru bæjarstjómirnar kosnar í heild til 4 ára, svo að með þeim hlaut meiri hlutinn að fá full og óskoruð völd yfir málum 28