orðum", sem eigi væri treyst til að standa við skuldbindingar sínar. Fiskiveiðasjóður er talsvert merkileg stofnun og á að geta orðið öflugur með tímanum. Stofnfé hans er um 700 000 kr., að mestu í veðskuldabréfum í bátum og fasteignum og að nokkru í peningum. Auk þess á hann að fá 1 000 000 kr. úr rikissjóði á næstu 10 árum og enn fremur 1 >/8 °/o aí verði á útfluttum sjávar- afurðum. Loks hefir hann heimild til þess að taka 1500 000 kr. lán. Árlegar tekjur sjóðsins ættu því að verða 150 000 kr. auk vaxta og af- borgana, er til falla. Sjóðurinn mun styðja að hentugum lánum fyrir mótorbáta, og sérstak- lega mun hann geta orðið öflug stoð fyrir sam- vinnuútgerð, sem getur orðið mjög hagfeld fyrir verkalýðinn og sem farinn er að vakna mikill áhugi á í ýmsum kauptúnum. Þá voru og á síðasta þingi samþykt ný sjó- mannalög, og eru í þeiin margar umbætur handa sjómönnum frá því, er áður var. Sigur- jón Á. Ölafsson átti mikinn og góðan þátt í undirbúningi þeirra. Auk þessa hefir þingflokkurinn flutt breyt- ingartillögur við ýms þingmál og sérstaklega komið því til leiðar, að ýmsir sjóðir verklýðs- félaganna hlutu fjárstyrk á fjárlögum. Ofan, í eindregin mótmæli flokksins var kjör- dagur 1929 fluttur frá hausti til sumars. Eru öllum kunn rök Alþýðuflokksins gegn þvi. Auk þess bar Haraldur Guðmundsson fram frumvarp um tekju- og eigna-skatt og fast- eignaskatt og stórkostlega lækkun á tollum af öllum nauðsynja- og þurftar-vörum í samræmi 3 33